María Selma valin í u-19

María Selma Haseta leikmaður Sindra hefur verið valin í u-19 ára landslið kvenna en Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, valdi fyrir skömmu hópinn sem mætir Finnum í tveimur vináttulandsleikjum ytra, 11. og 13. mars næstkomandi. Þessir leikir eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir keppni í milliriðlum EM en íslenska liðið leikur í Króatíu í apríl.

María Selma er frábær fulltrúi okkar og óskum við henni til hamingju með landsliðssætið.