Frestun á heimsókn Þorláks

Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari og landshlutafulltrúi KSÍ átti að vera með dagskrá í dag fyrir fjórða og þriðja flokk. Vegna mistaka við bókun á flugi þá frestast þessi dagskrá til morguns. Öll dagskráin færist því til um einn dag.
Dagskrá verður því þannig :

6.feb fimmtudagur

15.00 Fundur með stúlkum, sýndar klippur úr leik með U17 og A landsliðinu.

Fyrirlestur um hugarfar og undirbúning fyrir landslið og þess háttar. C.a 45 mín

16.00 Æfing með stúlkum í 75 mínútur

17.15 Æfing með strákum í 75 mínutur

18.30 Fundur með drengjum, sýndar klippur úr leik með U17 og A landsliðinu.

Fyrirlestur um hugarfar og undirbúning fyrir landslið og þess háttar. C.a 45 mín

7.feb

Kl.6.40 Æfing með bæði stelpum og strákum, áhersla á tækni. 60 mín

Kl.11.30 Fundur með yfirþjálfara og stjórn Knattspyrnu-deildar og unglingaráði