Æfingabúðir sunddeildar Sindra

  • Post category:Sund

Dagana 20 – 22 febrúar ætlar sundeild Sindra að vera með æfingabúðir fyrir sína iðkendur. Ingi Þór Ágústsson mun stjórna æfingum ásamt Jacky Pellerin landsliðsþjálfara Íslands, sem mun fylgjast með og miðla af reynslu sinni. Fundirnir verða í Heppuskóla.
Ég hvet alla foreldra til að mæta og fylgjast með sínum krökkum æfa.

Föstudagurinn 20. Febrúar

Kl. 18:30 – 19:30               Fundur með þátttakendum og foreldrum

  • Farið yfir dagskrá helgarinnar
  • Farið yfir æfingar helgarinnar og áherslur á þeim
  • Farið yfir markmiðasetningu
    • Markmið með æfingum
    • Markmið sem sundmenn hafa á KR móti
    • Markmið fyrir veturinn
    • Markmið fyrir framtíðina

19:30 – 21:00 Sundæfing – um 1.500 – 2.000m

Keppnisupphitun – farið yfir af hverju upphitun fyrir keppni

Hvað á að hita upp – hvernig – af hverju

Farið yfir rennsli – stungur – snúninga

Farið yfir öll sundin með það að markmiði að hraða snúningum sem og betra rennsli frá bakka

 

 Laugardagurinn 21. Febrúar

Kl. 09:00 – 10:00               Fundur fyrir sundæfingu

                Farið yfir gærdaginn – hvað var gott, hvað má gera betur

Farið yfir áherslur dagsins

Hraði – rennsli – snúningar – uppkoma og innkoma í bakka

Myndbandasýningar – sýnd stutt myndbönd af áherslum dagsins

Kl. 10:00 – 12:00               Sundæfing um 3.000m

Farið yfir atriði frá föstudeginum – snúninga, stungur, uppkoma og innkoma

Áhersla lögð á hraða snúninga og enga öndun fyrir og eftir snúninga

Tímasetningar í sundinu og drill til að læra tímasetningar

Kl. 15:00 – 17:00               Sundæfing um 1.500m – 2.000m

Upphitun fyrir keppni

Sprettir – stuttir sem lengri

Snúninga sprettir – flagga sprettir – æfingar til að auka hraða í keppni

17:30 – 19:00                     Fundur og Spurningakeppni

                Fundur um næringu fyrir og á meðan á keppni stendur (væri gott ef foreldrar hefðu tök á því að mæta).        

Spurningarkeppni um næringu, sund, keppni og áherslur helgarinnar – skipt upp í lið sem keppa sín á milli

 

Sunnudagurinn 22. Febrúar

Kl. 10:00 – 12:00               Sundæfing um 2.000m

                Keppnisupphitun á bakka og í laug

Farið yfir bakkaupphitun

Farið yfir upphitun í laug

Sprettir

Farið yfir helgina í lauginni og þau atriði sem farið var yfir

Kl. 12:30 – 13:30               Fundur og yfirferð

                Hvað lærðum við?

Hvernig ætlum við að nota það?

Markmið

 

Kveðja

Trausti Magnússon
Þjálari