Nú um helgina 28.feb – 2.mars verður knattspyrnuskóli Sindra í fyrsta skipti. Hugmyndin er að gera þetta að árlegum viðburði og til þess að svo geti orðið þurfum við að setja mikið púður í þetta og skila þessu af okkur af mikilli fagmennsku. Skráning gengur nokkuð vel og erum við að fá til okkur krakka viða að. Okkar iðkendur hafa verið duglegir að skrá sig og er það mjög ánægjulegt. Dagskráin er svo hér að neðan en allur matur og öll dagskrá er fyrir okkar krakka líka, nema gistingin.
Til þess að svona vinna geti orðið eins góð og við viljum hafa þetta þá þurfum við á hjálp foreldra og annara að halda. Yngri flokka ráð hefur verið að senda út lista þar sem foreldrar geta tekið að sér smá vinnu fyrir okkur og erum við hjá knattspyrudeildinni þeim sem hjálpa okkur mjög þakklát.
Í ár fáum við frábæra gestakennara til okkar og er smá kynning á þeim hér fyrir neðan. Við vorum svo að fá staðfestingu á því að leynigesturinn okkar kemur en Hermann Hreiðarsson hafi bæst í hópinn sem gerir þetta enn betra.
Kennarar og fyrirlesarar verða :
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Íslands. Heimir er mikill fagmaður og drengur góður. Hann tók strax mjög vel í það að koma til okkar í heimsókn og hjálpa okkur við þetta verkefni
Hermann Hreiðarsson fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður á Englandi í fjölda ára. Hemmi er við toppinn yfir þá erlendu leikmenn sem hafa spilað flestu leiki í ensku úrvaldeildinni sem segir okkur hversu góður hann var.
Auðun Helgason fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður. Auðun býr hér á Höfn og er hafsjór af fróðleik um leikinn. Hann vill miðla reynslu sinni og hjálpa ungu knattspyrnufólki að verða betri í fótbolta.
Þrándur Sigurðsson. Margir Hornfirðingar þekkja Þránd frá gamalli tíð. Þrándur er mjög virtur yngriflokka þjálfari hjá Víking Reykjavík. Þrándur er skólastjóri knattspyrnuskóla Víkings.
Alex Freyr Hilmarsson er einn af sonum Hornafjarðar og spilar með Grindavík. Alex er einn ef lykilmönnum liðsins og menn þar á bæ binda miklar vonir við hann.
Embla Grétarsdóttir er ein af þeim stelpum frá Hornafirði sem hafa náð langt. Embla á að baki fjölmarga leiki með KR og Val í efstu deild kvenna ásamt því að hafa verið í landsliðinu.
Skólinn byrjar á föstudagskvöldið kl 19.00 á innritun í Hafnarskóla og svo er skólaslit í hádeginu á sunnudaginn.
Knattspyrnuskóli Sindra 2014 | |||||
Dagskrá | |||||
Tími | Föstudagur 28 feb. | Hverjir | Hvar | ||
19:00 | Skráning og móttaka | Allir | Hafnarskóla | ||
20:00 | Fyrirlestur í Nýheimum | Allir | Nýheimum | ||
21-22:30 | Kvöld hressing | Allir | Matsalur Hafnarskóla | ||
23:00 | Allir fara að sofa | Allir | Gestir gista í Hafnarskóla | ||
Laugardagur 1 mars | |||||
08:00 | Morgunmatur | Allir | Matsalur Hafnarskóla | ||
09:00 | Fyrirlestur | 5. flokkur | Nýheimum | ||
09:00 | Æfing | 4. flokkur | Báran | ||
10:20 | Æfing | 3. flokkur | Báran | ||
11:40 | Æfing | 5. flokkur | Báran | ||
12.00-13:30 | Matur | Allir | matsalur Hafnarskóla | ||
13:30 | Fyrirlestur | 4.-3.flokkur | Nýheimum | ||
14:30 | Æfing | 4. flokkur | Báran | ||
15:30-16:30 | Æfing | 5. flokkur | Báran | ||
15:30-16:00 | Miðdegishressing | Allir | Matsalur Hafnarskóla | ||
16:00 – 17:00 | Sund | 5.flokkur | Sundlaug Hafnar | ||
16:30 – 17.30 | Æfing | 3. flokkur | Báran | ||
17:30 – 19.00 | Sund | 4-3 flokkar | Sundlaug Hafnar | ||
19.00-20:00 | Kvöldmatur (Grillveisla) | Allir | Matsalur Hafnarskóla | ||
20.00 – 21:00 | Þrykkjan | 5.flokkur | Þrykkjan | ||
20.00-22:30 | Kvöldskemmtun+ hressing | 4.-3.flokkur | Þrykkjan | ||
23:00 | Allir fara að sofa | allir | Gestir gista í Hafnarskóla | ||
Sunnudagur 2. mars | |||||
8:00-9:00 | Morgunmatur | Allir | Matsalur Hafnarskóla | ||
09:00 – 10:00 | Æfing | 5. flokkur | Báran | ||
10:10 – 11:10 | Æfing | 4. flokkur | Báran | ||
10:10 | Sund | 5. flokkur | Sundlaug Hafnar | ||
11:20 – 12:20 | Æfing | 3. flokkur | Báran | ||
11:20 | Sund | 4. flokkur | Sundlaug Hafnar | ||
13:00 | Súpa og brauð / skólaslit | Allir | Hafnarskóli | ||