Þrjár Sindrastúlkur kallaðar á landsliðsæfingar

  • Post category:Knattspyrna

Ungir Sindramenn halda áfram að gera það gott en þrjár stúlkur hafa nú verið kallaðar á landsliðsæfingar.

Þær Ingibjörg Lúcía og Ingibjörg Valgeirsdóttir hafa nú verið kallaðar á U17 ára landsliðsæfingu. Ingibjörg Lúcía og Sigrún Salka voru á U17 ára æfingu ekki fyrir svo löngu síðan. Það er því ljóst að við erum með þrjár stúlkur sem eru á blaði landsliðsþjálfara úr þessum árgangi sem er frábært

María Selma Haseta hefur svo verið kölluðu á U 19 ára æfingar næstu helgi. María Selma, sem var besti leikmaður meistaraflokks kvenna í sumar, vann sér fast sæti í U19 ára liðinu núna í haust og spilaði alla leiki liðsins í riðilsins i í undankeppni  Evrópumótsins.

Það er því ljóst að ungu leikmennirnir okkar eru að minna á sig og vonandi fylgja þeim bara fleiri eftir.