Knattspyrnudeild semur við þrjá leikmenn og tvo þjálfara

Í vikunni samdi knd. Sindra við þrjá knattspyrnumenn, þá Guðmund Reyni Friðriksson, Mate Paponja og Robertas Freidgeimas. 

Robertas Freidgeimas verður þrjátíu og þriggja á þessu ári og er orðinn öllum hnútum kunnugur á Höfn. Þessi öflugi varnarmaður kom til okkar árið 2018  og hefur spilað 94 leiki fyrir félagið og skorað 13 mörk. Freddy eins og hann er kallaður er frábær leikmaður og liðsmaður! Óhætt er að segja að það séu gleðitíðindi fyrir alla Sindramenn að samningur við hann hafi verið framlengdur til tveggja ára.

Mate Paponja verður þrjátíu og eins á þessu ári og var valinn besti leikmaður Sindra í fyrra. Hann hefur verið leikmaður Sindra frá árinu 2017. Mate er gríðalega fjölhæfur leikmaður og getur spilað allar stöður vallarins. Hann hefur skorað 40 mörk í 113 leikjum fyrir félagið. Mate hefur einnig verið að þjálfa yngri flokka Sindra og það eru ekkert minna en frábærar fréttir að við fáum að hafa hann á Hornafirði í a.m.k tvö ár í viðbót. 

Guðmundur Reynir Friðriksson  verður sextán á árinu og kemur upp úr yngriflokka starfi Sindra. Í september s.l. spilaði Guðmundur fyrir U-15 ára landslið Íslands. Hér er á ferðinni efnilegur markvörður sem á framtíðina fyrir sér. Hann hefur tekið þátt í Kjarnafæðismótinu í vetur með mfl. Sindra og staðið sig vel. Það eru gleðitíðindi að semja við Guðmund til tveggja ára.

Einnig hefur knattspyrnudeild nýlega samið við tvo þjálfara:

Jóhann Bergur Kiesel skrifaði undir tveggja ára samning um að þjálfun meistaraflokks kvenna ásamt Vesko og um þjálfun yngri flokka. Jóhann Bergur er kominn heim eftir að hafa þjálfað HK þar sem hann kom þeim uppúr 2.deild kvenna 2020. Jóhann Bergur er að ljúka KSÍ B þjálfararéttindum og er gríðarlegur fengur í starfið okkar hjá Sindra en hann mun einnig koma til með að vinna fyrir aðalstjórn.

Mariano Ferreyra skrifaði undir tveggja ára samning um þol- og styrktarþjálfun fyrir yngri- og meistaraflokka félagsins. Hann mun vinna náið með öðrum þjálfurum Sindra, aðstoða þá við undirbúning æfinga, vera reglulega til staðar á æfingum og vinna sérstaklega með einstökum leikmönnum sem þurfa að styrkja sig líkamlega. Þá er hlutverk Mariano að leiðbeina iðkendum um heilbrigðan lífstíl og kenna þeim að efla almennt hreysti og styrk.

Arna og Guðmundur
Arna og Mate
Arna og Mariano
Arna og Freddy