Frítt Dómaranámskeið

  • Post category:Fréttir

Frjálsar
Dagana 27. og 28. maí verður haldið námskeið í dómgæslu í frjálsíþróttum og hvetjum við alla þá að mæta sem hafa áhuga á að vera sjálfboðaliðar á Unglingalandsmótinu sem verður á Höfn um Verslunarmannahelgina 1.-4. ágúst.

Kennt verður báða dagana frá kl. 19-22 og seinni dagurinn endar með prófi.
Fyrra kvöldið verður farið yfir almenn atriði er varða dómgæslu og hlaupagreinar.
Seinna kvöldið verða teknar fyrir vallargreinar, þ.e. stökk og köst. Í boði er fullt námskeið sem lýkur með skriflegri könnnun / prófi og að því loknu, og með viðunandi árangri, hefur þátttakandi hlotið réttindi héraðsdómara í frjálsíþróttum sem hafa gildistíma til loka árs 2023.

Þeir sem hafa áður hlotið héraðsdómararéttindi fyrir meira en fjórum árum, geta endurnýjað réttindi sín með því að taka skriflega prófið án þess að sitja námskeiðið.

Þá er einnig í boði að taka einungis almenna hlutann og svo hlaup, stökk eða köst og þar með fá réttindi greinadómara í hlaupum, stökkum eða köstum. Ekki þarf að taka próf ef einungis er ætlunin að ná sér í réttindi greinadómara.

Æskilegt er að þátttakendur á námskeiðinu hafi með sé fartölvu eða snjallsíma til að hlaða námsefni niður á.

Kennari á námskeiðinu verður Þorsteinn Þorsteinsson, formaður dómaranefndar Frjálsíþróttasambands Íslands, FRÍ.

Skráningar á námskeiðið sendist til:
Önnu Bjargar abk@simnet.is
Berglindar: berglind@glacieradventure.is