Kraftlyftingadeild Sindra hefur náð samkomulagi við Sporthöllina um að deildin hefji reglubundnar lyftingaræfingar í vetur þar á bæ.
Kynningartími verður á Fimmtudaginn 02. Nóvember kl. 19.00 og dagsnámskeið verður svo Sunnudaginn 05. Nóvember.
Reglubundnar æfingar verða svo á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 19.00 til 20.00 í Sporthöllinni.