Við erum í liði Sindra
og enginn skal okkur hindra
að koma með sigur úr hverjum leik.
Við eigum markmann, stórmarkmann,
með snerpu boltann ver hann
út á velli, út á velli.
Við eigum markmann, stórmarkmann,
með snerpu boltann ver hann
út á fótboltavellinum.
Við erum í liði Sindra
og enginn skal okkur hindra
að koma með sigur úr hverjum leik.
Vörnin stoppar hún stoppar
strákana/stelpurnar og hoppar
burt með boltann, burt með boltann.
Vörnin stoppar, hún stoppar
Strákana/stelpurnar og hoppar
burt með boltann í sóknina.
Við erum í liði Sindra
og enginn skal okkur hindra
að koma með sigur úr hverjum leik.
Á miðju senda, þeir senda,
boltana og enda,
sókn með marki, sókn með marki.
Á miðju senda, þeir senda,
boltana og enda,
sókn með marki óverjandi.
Við erum í liði Sindra
og enginn skal okkur hindra
að koma með sigur úr hverjum leik.
Í fremstu línu, framlínu,
leika sér að fínu
marki skora, marki að skora
Í fremstu línu, framlínu,
leika sér að fínu
marki skora, stöngin inn.
Við erum í liði Sindra
og enginn skal okkur hindra
að koma með sigur úr hverjum leik.