- Forvarnargildi íþrótta.
Íþróttahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í vímuvörnum. Rannsóknir á högum barna og ungmenna sýna að ungmenni sem eru virk í íþróttastarfi reiður betur af og neyta síður vímuefna en þau sem ekki taka þátt. Einnig sýna rannsóknir að neysla tóbaks og annarra vímuefna hefur neikvæð áhrif á árangur í íþróttum. Félagið vill efla enn frekar vímuvarnagildi íþrótta með því að taka skýra afstöðu gegn neyslu í tengslum við íþróttir. Í þessari stefnuyfirlýsingu er talað um „vímuefnaneyslu“, þá er átt við neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna.
- Neysla vímuefna og tóbaks
Öll notkun vímuefna og tóbaks er bönnuð á yfirráðasvæðum ungmennafélagsins Sindra og er félagið andvígt neyslu hverskonar vímuefna.
Öll neysla vímuefna og hverskyns tóbaks er bönnuð á æfingum, sýningum, ferðalögum og mótum á vegum félagsins. Verði þjálfari eða starfsmenn Sindra var við brot á þessu ber þeim að láta formenn deilda vita eða framkvæmdastjóra félagsins.
- Viðbrögð félagsins við neyslu iðkenda.
Félagið mun bregðast sérstaklega við allri neyslu iðkenda undir 18 ára aldri og foreldrar verða undantekningarlaust upplýstir um slíka neyslu.
Þegar um sjálfráða einstaklinga er að ræða (eldri en 18 ára) mun félagið bregðast við vímuefnaneyslu þeirra, þar sem reglur félagsins eru brotnar (sbr. lið 2) og þar sem hún hefur áhrif á ástundun, frammistöðu og ímynd félagsins.
Viðbrögð félagsins við broti á reglum þessum verða í formi tilmæla og ábendinga. Skili slík viðbrögð ekki árangri getur komið til tímabundið bann frá æfingum og eða keppni.
Viðbrögð Ungmennafélagsins Sindra munu samt sem áður alltaf mótast af vilja til að aðstoða iðkandann við að laga sig að reglunum og styðja hann í að halda áfram að stunda íþróttir með Sindra.
- Hlutverk þjálfara í forvarnarstefnu félagsins
Þjálfarar skulu vinna eftir forvarnarstefnu félagsins, þar með talið að bregðast við vímuefnaneyslu iðkenda á viðeigandi hátt. Til að sem best verði tryggt að stefnu félagsins í forvörnum gegn vímefnanotkun verði náð mun félagið leitast við að uppfræða þjálfara, leiðbeinendur og aðra starfsmenn og leiðbeina þeim um viðbrögð við neyslu iðkenda og annarra á félagssvæðinu. Þjálfarar skulu framfylgja stefnu félagsins varðandi samstarf við foreldar og aðra aðila, sem sinna málfefnum barna og unglinga.
- Samstarf við foreldra
Félagið mun upplýsa foreldra um stefnu félagsins í vímuvörnum. Félagið mun standa að góðu samstarfi við foreldra iðkenda með fræðslu um neikvæð áhrif áfengis og annarra vímuefna á árangur í íþróttum auk fræðslu til foreldra um þjálfun og æskilegt mataræði íþróttafólks. Félagið mun starfa náið með fagfólki í vímuvörnum og hafa samráð við foreldra þurfi að taka á vandamáli iðkanda undir sjálfræðisaldri.
- Samstarf við aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga
Félagið mun hafa náið samstarf við þá aðila sem sinna tómstundastarfi og forvarnarstarfi barna og unglinga í sveitafélaginu. Félagið mun hafa náið samstarf við fagaðila sem sinna börnum og unglingum, fá frá þeim fræðsluefni og hafa samráð um einstaklinga í áhættuhópi.
- Kynferðislegt ofbeldi
Félagið vil sporna við því í hvívetna að kynferðislegt ofbeldi geti átt sér stað innan félagsins eða í tengslum við starfsemi þess. Félagið mun hafa þetta m.a. í huga í tengslum við fræðslumál. Félagið mun í því skyni uppfræða starfsfólk um hugsanleg merki um kynferðislegt ofbeldi ásamt því að uppfræða um það hvernig hægt er að komast hjá því að slíkt eigi sér stað sem og að bregðast við því ef upp kemur.