👩🏻‍🦰 Konudagur

Konudagur er fyrsti dagur Góu sem er sunnudagurinn í 18. viku vetrar á milli 18. og 24. febrúar.

Rétt eins og fyrsti dagur mánaðarins Þorra er Bóndadagurinn. Þann dag minntust bændur og eiginmenn húsfreyjunnar með því að fagna Góu sem færir með sér vaxandi birtu og vorinnganginn.

Orðið Konudagur varð fyrst algengt á 20. öld. Jón Árnason nefnir að vísu ekki daginn í þjóðsögunum sínum en álíka gömul heimild ætti að teljast nokkuð áreiðanleg:

Ingibjörg Schulesen kvaðst hafa kynnst bæði Konudegi og Bóndadegi þegar hún var sýslumannsfrú á Húsavík 1841-1861, það er áður en Þjóðsögur Jóns Árnasonar komu út á prenti. Þau ummæli hennar eru þó ekki bókfest fyrr en 1898.

Sú hefð að menn gefi konum blóm í tilefni Konudagsins virðist hafa hafist um miðjan sjötta áratug síðustu aldar en þá tóku blómasalar að auglýsa konudagsblóm.

Þórður á Sæbóli í Kópavogi mun hafa verið upphafsmaður þess en fyrsta blaðaauglýsingin sem hefur fundist frá Félagi garðyrkjubænda og blómaverslana er frá 1957.

▶︎ Nánar um Konudag á Íslenska Almanaksvefnum

▶︎ Nánar um Bóndadag á Íslenska Almanaksvefnum

Date

feb 21 2021
Expired!

Time

00:00 - 23:55