✞ Hvítasunnudagur

Hvítasunnudagur sem til forna var oftast kallaður Hvítadagur er ein af þremur megin hátíðum kristinnar kirkju auk Páska og Jóla.

Upphaflega táknaði Hvítasunnan lok Páskatímans sem varði í 50 daga talið frá Páskadegi og er Hvítasunnudagur 49. dagurinn eftir Páskadag og tíundi dagurinn eftir Uppstigningardag. Var uppstigningunni upphaflega fagnað á Hvítasunnudag uns hún var færð og öðlaðist sinn eigin dag.

Hvítasunnan líkt og fleiri hátíðir kirkjunnar eru upphaflega komnar frá Gyðingum og meðal þeirra var hún uppskeruhátíð sem haldin var á fimmtugasta degi eftir hina Gyðinglegu Páska en forngrískt heiti Hvítasunnunnar pentekosté heméra merkir einmitt fimmtugasti dagurinn og kemur frá grískumælandi Gyðingum.

Af hinu gríska nafni er heiti hennar dregið í ýmsum erlendum málum. Á Dönsku kallast hún Pinse og á ensku Pentecost en á Ensku er einnig til sambærilegt nafn því Íslenska sem er Whitsunday.

Frá því að vera uppskeruhátíð meðal Gyðinga minnast kristnir þessa dags þegar heilagur andi kom yfir lærisveinana og aðra fylgjendur Jesú eins og lýst er í Postulasögunni en jafnframt loka 50 daga Páskatíðar eins og Gyðingar.

Hvítadagur sem venjulega var notað áður fyrr dró nafn sitt af því að algengt var að fólk væri skírt aðfaranótt Hvítasunnu en hún var einnig haldin hátíðleg líkt og margar aðrar aðfaranætur stórhátíða. Eftir skírnina var fólk klætt í hvít klæði og er þaðan komin hefðin fyrir hvíta skírnarkjólnum sem við notum í dag.

Er Hvítasunnudagur Almennur frídagur sem og mánudagurinn þar á eftir, Annar í hvítasunnu.

▶︎ Nánar um Hvítasunnudag á Íslenska Almanaksvefnum

▶︎ Nánar um Frídagar á Íslandi á Íslenska Almanaksvefnum

▶︎ Nánar um Hátíðardagatal Íslensku Þjóðkirkjunnar á Íslenska Almanaksvefnum

Date

maí 23 2021
Expired!

Time

00:00 - 23:55