✞ Höfuðdagur

Höfuðdagur er 29. ágúst og ber þetta nafn vegna þess að á þessum degi var Jóhannes skírari tekinn af lífi með afhöfðun en Heródes konungur Antipas lét höggva af honum höfuðið vegna óskar Salóme fósturdóttur sinnar og móður hennar Herodias árið 31. e. Kr. Var Höfuðdagur fyrrum haldinn heilagur í minningu þessa.

Líklegast var það þó sú veðurtrú sem var áður fyrr að veður myndi snúast með Höfuðdegi sem minnti fólk á daginn. Verandi viku eftir lok Hundadaga sem er heitasti tími sumars og hvernig viðrar um Hundadagana því mjög mikilvægt öllum landbúnaði og eðlilega margskonar veðurtrú til þeim tengdum.

afloknum Hundadögum tekur við ekki síður mikilvægur tími sérstaklega hvað heyskap varðar og virðist sú trú hafa verið að veður myndi snúast á Höfuðdegi. En svo segir á einum stað:

„Bregður þá vanalega veðráttu og helzt þá hið sama í 20 daga og minnir á það í 40 daga eftir Egediusmessu (1. sept.).“

▶︎ Nánar um Höfuðdag á Íslenska Almanaksvefnum

  • 00

    days

  • 00

    hours

  • 00

    minutes

  • 00

    seconds

Date

ágú 29 - 30 2029

Time

00:00 - 23:55