BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.5.6//EN
X-ORIGINAL-URL:https://umfsindri.is/
X-WR-CALNAME:UMF Sindri
X-WR-CALDESC:Við erum í liði Sindra...
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-8e489b4966fe8f703b5be647f1cbae63@umfsindri.is
DTSTART:19700101T000000Z
DTEND:20210922T235500Z
DTSTAMP:20210325T224700Z
CREATED:20210325
LAST-MODIFIED:20210325
PRIORITY:5
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:☀️ Haustjafndægur
DESCRIPTION:\nJafndægur er sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar. Þetta gerist tvisvar á ári á Vorjafndægri á tímabilinu 19.-21. mars og á Haustjafndægri 21.-24. september.Árið 2021 er Haustjafndægur þann 22. september klukkan 19:21.\nUm þetta leyti er dagur og nótt álíka löng hvar sem er á jörðinni og af því er nafnið dregið. Breytileiki dagsetninganna stafar aðallega af hlaupárum.\nÍ mörgum fornum menningarsamfélögum var upphafsdagur ársins oft miðaður við Vor- eða Haustjafndægur og eins Vetrar- eða Sumarsólstöður enda marka þessi tímamót hvert fyrir sig ákveðin árstíðaskipti náttúrunnar svo eðlilegt var að miða við eitthvert þeirra.\nDæmi um notkun jafndægra sem árstíðaskipta hér á landi þá segir um vorið í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu að það sé frá Jafndægri að vori til Fardaga en þá taki við sumar til Jafndægris á hausti.\nEngin eiginleg áramót eru í Norræna misseristalinu en hvoru misseris fyrir sig fagnað sérstaklega. Vetrarmisseris fagnað Fyrsta vetrardag annarsvegar og sumarmisseris Sumardaginn fyrsta hinsvegar. \nMisseristalið skipti árinu í tvo nokkurnveginn jafnstóra helminga, vetrar- og sumarmisseri en hvorki vor né haust voru talin þar með þótt þau ættu sér reiknaðar tímasetningar eins og fram kemur í Snorra-Eddu þá tilheyrðu þau ekki öðru hvoru misserinu sérstaklega. \nTil dæmis nær vor eins og Snorri kallar það yfir síðasta hluta vetrar og fyrsta hluta sumars. Því var ekki um skýr skil milli árstíða líkt og við í dag skiptum árinu upp í fjórar árstíðir sem hver tekur við af annari og engin skörun þeirra á milli\n▶︎ Nánar um Jafndægur á Íslenska Almanaksvefnum\n\n
URL:https://umfsindri.is/events/%e2%98%80%ef%b8%8f-haustjafndaegur/
END:VEVENT
END:VCALENDAR
