BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv6.5.6//EN
X-ORIGINAL-URL:https://umfsindri.is/
X-WR-CALNAME:UMF Sindri
X-WR-CALDESC:Við erum í liði Sindra...
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-7b66e8931c93da8c88a0a8b6dec62f9e@umfsindri.is
DTSTART:19700101T000000Z
DTEND:20270515T235500Z
DTSTAMP:20210325T224600Z
RRULE:FREQ=YEARLY
CREATED:20210325
LAST-MODIFIED:20210325
PRIORITY:5
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:👥 Vinnuhjúaskildagi
DESCRIPTION:Vinnuhjúaskildagi þann 14. maí ár hvert var áður fyrr sá dagur ársins sem ráðning eða ársvist vinnufólks miðaðist við. \nHann var upphaflega 3. maí á Krossmessu á vor en þegar tímatalsbreytingin var gerð árið 1700 og teknir voru 11 dagar úr árinu færðist hann frá 3. til 14. maí.\nTilflutningurinn til 14. maí virðist líka hafa hentað betur sem vistaskiptadagur þar sem sjósókn og fiskverkun voru farin að skipta æ meira máli á þessum tíma og 14. maí passaði betur upp á vertíðir.\nSú kvöð var áður fyrr að allir karlar og konur sem ekki áttu eða réðu á annan hátt yfir eigin búi urðu að vera vinnuhjú á heimili einhvers annars. Venjan var að ráða sig í vinnu eitt ár í senn og mátti síðan eingöngu skipta um vinna á Vinnuhjúaskildagi. \nLög um þessa tilhögun það er að fólk væri nauðugt til þess að þurfa að vera í vist hjá einhverjum öðrum og mega ekki skipta um hana nema einn ákveðinn dag á ári var það sem kallaðist vistarband og var fólki refsað fyrir að fylgja ekki þessum lögum. \nFyrir tíma Vinnuhjúaskildagi miðuðust þessi vistaskipti vinnandi fólks við Fardaga eða þá daga sem fólk skildi flytjast búferlum af einni jörð á aðra og átti það fyrst og fremst um leiguliða.\nFardagar voru enn fremur viðmiðun í ýmsum viðskiptum og réttarathöfnum einkum innheimtu og var fardagaárið almennt reikningsár til dæmis í landbúnaði allt fram á 20. öld. \nEins var með Vinnuhjúaskildagi eftir að hann var fluttur af Fardögum að mikið var við hann miðað í ýmsum viðskiptum og almennum samningum.\n▶︎ Nánar um Vinnuhjúaskildag á Íslenska Almanaksvefnum▶︎ Nánar um Krossmessa á vori ( https://islensktalmanak.wordpress.com/dagar/krossmessa-a-vori/ ) á Íslenska Almanaksvefnum\n▶︎ Nánar um Fardaga ( https://islensktalmanak.wordpress.com/dagar/fardagar/ ) á Íslenska Almanaksvefnum\n
URL:https://umfsindri.is/events/%f0%9f%91%a5-vinnuhjuaskildagi/
END:VEVENT
END:VCALENDAR
